Íbúar njóti árangursins
- Bragi Bjarnason

- Dec 30, 2025
- 3 min read
Hlutverk okkar í samfélaginu geta verið æði misjöfn. Ég tel mig ótrúlega heppinn að vera í því hlutverki að starfa í þjónustustarfi ásamt þúsund öðrum fyrir samfélagið mitt, Árborg. Það hefur ekki alltaf verið dans á rósum undanfarin ár en þegar árangur sést af ákvörðunum er það þess virði.
Nú þegar líður að síðustu metrunum á þessu kjörtímabili og horft er til kosninga í vor er áhugavert að líta aðeins til baka um leið og horft er fram á veg.
17 milljónir eftir
Bæjarstjórn tók við erfiðri fjárhagsstöðu sveitarfélagsins árið 2022 þar sem skuldir höfðu rúmlega tvöfaldast á fjórum árum. Höfðu farið úr 12,3 milljörðum í lok árs 2018 upp í 28,3 milljarða í lok árs 2022. Þessi sextán milljarða króna hækkun er hvorki meira né minna en 2,5 milljónir á hvern íbúa hér í Árborg. Þess utan var reksturinn neikvæður ár frá ári og tapið komið í um 7,8 milljónir króna á dag árið 2022. Við þessu varð að bregðast og enda gengur svona ekki upp og allt fjármagn í raun uppurið.

Mynd 1: Heildarskuldir og skuldbindingar Árborgar ásamt áætlun 2025-2028
Ný bæjarstjórn fór samhent í verkefnið og tók bæði erfiðar og óvinsælar ákvarðanir til að rétta af fjárhag sveitarfélagsins. Sú vinna hefur skilað okkur á miklu betri stað. Engu að síður eru sumir sem nú reyna að halda því fram að sumar þessara aðgerða hafi verið óþarfar. Slíkt stenst enga skoðun. Aðgerðirnar hafa skilað árangri, sín á hverjum tímapunkti og saman komið sveitarfélaginu á betri stað. Tölurnar styðja við þá frásögn líkt og sjá má á myndum þar sem skuldir eru byrjaðar að lækka og reksturinn orðin jákvæður aftur.
Meirihluti bæjarstjórnar Sjálfstæðisflokks og Áfram Árborgar hefur viljað nálgast verkefnið af hreinskilni og alltaf reynt að upplýsa íbúa um stöðu mála og þær aðgerðir sem gripið hefur verið til.

Mynd 2: Rekstrarniðurstaða Árborgar ásamt áætlun 2025-2028
Við íbúar eigum bæði rétt á og viljum fá ákveðna þjónustu frá sveitarfélaginu okkar. Þjónustu sem er veitt af starfsfólki sem og þjónustuaðilum sem sveitarfélagið greiðir fyrir. Hjá Árborg fara um 800 milljónir í launakostnað og 500 milljónir í annan rekstrarkostnað í hverjum mánuði. Það var því vond staða einn mánuðinn, eftir að laun voru greidd að eiga aðeins um 17 milljónir eftir inn á bankareikningi til að greiða aðra reikninga. Slíkt gat ekki gengið og það er ánægjulegt að staða Sveitarfélagsins Árborgar er nú betri.
Árangurinn okkar allra
Saga og reynsla býr til mikilvæga þekkingu en einnig er brýnt að hafa skýra sýn til framtíðar. Meirihluti bæjarstjórnar vill áfram standa fyrir ábyrgum rekstri sem um leið skilar ávinningi til okkar íbúa. Er það í formi bættrar og réttari þjónustu ásamt lægri álögum, svo sem fasteignagjalda. Stefna sem á að endurspeglast í ákvörðunum og við gerð fjárhagsáætlana næstu ára.
Ávallt er unnið að því að sveitarfélagið veiti réttláta þjónustu. Geri ég þá ekki greinamun á þjónustu sem sveitarfélaginu ber að veita samkvæmt lögum eða annarri þjónustu sem við sem samfélag teljum mikilvæga. Þarna eru m.a. undir sérhæfð þjónusta við börn, fullorðna og fjölskyldur, þjónusta leik- og grunnskóla, snjómokstur, félagsmiðstöð barna eða eldri borgara, opnunartími sundlauga og gámasvæðis ásamt fleiri þjónustuþáttum sem eru hluti af heildarþjónustu sveitarfélagsins.
Mér er þakklæti efst í huga til allra sem hafa komið að verkefnum Árborgar undanfarin ár. Kjörnir fulltrúar sem höfðu kjark til að taka erfiðar ákvarðanir, starfsmenn sem hafa komið með ótrúlega góðar lausnir í erfiðri stöðu sem margar hverjar skila betra vinnulagi til framtíðar. Ráðgjafar sem miðluðu þekkingu og veittu aðstoð á réttum stöðum og síðast en ekki síst allir íbúar sveitarfélagsins sem hafa tekið á sig auknar álögur og einhverjum tilfella skerta þjónustu tímabundið. Við skulum aldrei gleyma þessu því það er bjart framundan og mikilvægt að lenda aldrei aftur á sama stað. Með góðum rekstri sveitarfélagsins er hægt að lækka álögur og veita þjónustu, okkur íbúum Árborgar til heilla.
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg


Comments