Viðburðarríkt ár senn að baki
- Bragi Bjarnason

- Dec 30, 2025
- 3 min read
Það er ekki ofsögum sagt að tíminn líði hratt. Árið 2025 hefur verið viðburðaríkt og nú er desember genginn í garð með tilheyrandi undirbúningi jólahátíðar og áramóta. Lífsreynsla ársins fer í reynslu- og minningarbankann þegar hugsað er til baka og áhugaverð atvik rifjuð upp. Þakklæti er mér ofarlega í huga og margt sem við getum glaðst yfir ásamt því að læra af reynslunni til að gera betur á næsta ári. Sveitarfélagið Árborg er samfélag sem ég er stoltur að tilheyra og mun alltaf reyna að gera mitt besta fyrir Árborg okkar allra.

Stóðum við loforðin
Frá sjónarhóli stjórnmála er heilt kjörtímabil að líða undir lok með kosningum til sveitarstjórnar í maí nk.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt í vel heppnuðu meirihlutasamstarfi við Áfram Árborg sem sést vel á þeim árangri sem náðst hefur. Það er ótrúlegt að hugsa til þess hvað bæjarfulltrúar, starfsmenn, ráðgjafar og íbúar hafa áorkað miklu saman á þessum tíma með samstilltu átaki sínu. Hér hefur orðið viðsnúningur heils sveitarfélags sem stendur sterkara eftir. Vil ég þakka öllum fyrir þeirra ómetanlega framlag.

Mynd 1: Rekstrarniðurstaða Árborgar ásamt áætlun til 2029
Kosningaloforð okkar sjálfstæðis-manna vorið 2022 var að endurreisa fjárhag sveitarfélagsins til að skapa stöðu til að lækka álögur og skatta á íbúa. Verkefnið hefur á engan hátt verið auðvelt. Hagræðing og uppsagnir breyttu grunnrekstrinum fljótlega. Sala eigna, minni lántaka og álag á útsvar til eins árs gjörbreyttu lausafjárstöðu sveitarfélagsins til hins betra. Þetta reyndust nauðsynlegar aðgerðir svo tryggja mætti grunnþjónustu, lækka skuldaviðmið og styrkja rekstrarstöðu Árborgar til framtíðar.
Önnur verkefni hafa náð vel fram að ganga og er Farsæld barna eitt af forgangsverkefnum sveitarfélagsins. Þar sameinar „Áttaviti æskunnar“ þá sameiginlegu sýn og fjölbreyttu þjónustu sem börnum og fjölskyldum stendur til boða. Leikskólaplássum hefur verið fjölgað í samræmi við íbúafjölgun og fyrirkomulag leikskóla lagað betur að þörfum barna, foreldra og starfsmanna.
Aðgerðir hafa skilað árangri og endurspeglast sá árangur í nýsamþykktri fjárhagsáætlun ársins 2026. Þar lækkum við álögur á íbúa og fyrirtæki, aukum framlag til mennta-, velferðar- og frístundamála og bætum í fjárfestingar og viðhald. Ábyrgur rekstur skilar sér nefnilega í ávinningi til íbúa.
Samstarf flokkanna hefur gengið vel. Stefnan er að viðhalda ábyrgum rekstri og horfa til framtíðar. Slíkt á enda að vera ofarlega í hugum kjörinna fulltrúa sem þurfa að horfa lengra en eitt kjörtímabil.
Staða atvinnurekstrar á svæðinu er að batna og fjölmörg áhugaverð framkvæmdaverkefni á döfinni. Á það bæði við sveitarfélagið og einkaaðila og tryggir slíkt áfram ný störf, bætta þjónustu, fjölbreytt framboð á íbúðum og sterka innviði. Hér ríkir tiltrú á öflugt samfélag þar sem er fjölbreytt þjónusta í boði ásamt öflugri menningu. Það er undir okkur íbúunum að viðhalda þessum styrk svo sem með því að nýta þá afþreyingu og þjónustu sem í boði er. Frasinn “VERSLUM Í HEIMABYGGД á vel við núna þegar jólagjafainnkaupin ná hámarki en er jafn mikilvægur alla aðra mánuði ársins.
Fjölskyldan í fyrirrúmi
Núna á aðventunni er gott tækifæri til að staldra aðeins við í amstri dagsins og gleyma ekki að njóta með sínum nánustu. Hvort sem það er að baka smákökur, spila með vinum og fjölskyldu, laufabrauðsgerð eða önnur samverustund, þá eru það þessar gæðastundir sem sitja raunverulega eftir í minningabankanum.
Ég ætla að ná eins mörgum slíkum stundum og hægt er næstu vikurnar og hvet aðra til hins sama. Þar liggja nefnilega hin raunverulegu verðmæti.
Ég minnist þessa árs með gleði og þakklæti í huga, þakklæti fyrir kærleiksríka fjölskyldu, vini og samferðamenn, sem og traust í garð okkar sem hefur verið treyst til að leiða sveitarfélagið okkar. Við erum að vinna fyrir samfélagið og viljum gera það sem allra best.
Vil ég óska íbúum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg


Comments