top of page
  • Writer's pictureBragi Bjarnason

Nýsköpun og öflugt atvinnulíf í Árborg

“Sveitarfélagið á að vera í virku samtali við atvinnulífið, efla nýsköpun og vinna að því að fjölga atvinnutækifærum í sveitarfélaginu með markvissum hætti.”




Sveitarfélagið Árborg hefur vaxið mikið undanfarin ár og er fjöldi íbúa nú í kringum 11 þúsund. Flesta virka daga fer hluti íbúa til vinnu á höfuðborgarsvæðið eða til nágrannasveitarfélaga sem er í sjálfu sér eðlilegt upp að vissu marki. Það verður þó með auknum íbúafjölda að huga að fjölgun fjölbreyttra atvinnutækifæra í Árborg með það að markmiði að íbúar geti haft fleiri valmöguleika um áhugaverð störf í nærsamfélaginu, stutt frá heimili og fjölskyldu.


Atvinnustefna og skýr markmið

Fyrirtækjum er í auknum mæli ýtt frá ákveðnum svæðum á höfuðborgarsvæðinu og Árborg gæti verið kjörin staður til uppbyggingar fyrir mörg þeirra. Nýtt skrifstofuhótel mun gefa aukin tækifæri en samfélag með góða skóla, öflugt íþrótta- og frístundastarf, nægt landrými og góðar tengingar við helstu samgönguleiðir, ásamt inn- og útflutningshöfn í næsta nágrenni ætti að vera kjörinn staður til frekari uppbyggingar á atvinnustarfsemi. Slíkt gerist ekki af sjálfu sér og vil ég koma að því að leiða sveitarfélagið í samstarfi við hagsmunaaðila að setja fram stefnu með skýr framtíðarmarkmið um hvernig atvinnuuppbyggingu við viljum sjá í sveitarfélaginu.


Tækifæri til nýsköpunar

Sveitarfélagið Árborg á að vera í virku samtali við fjölbreyttar atvinnugreinar í samfélaginu. Þannig getur sveitarfélagið verið betur í stakk búið að skapa umhverfið sem eflir og hvetur til nýsköpunar og þróunar. Hvort sem um er að ræða verslun, ferðaþjónustu eða fjölbreyttan iðnað.

Gott samstarf grunnskóla í Árborg, FSu, FabLab Selfoss, Háskólafélags Suðurlands, atvinnulífsins og tengdra aðila er mikilvægt til að efla og ala upp nýsköpunarhugsun hjá ungmennum í samfélaginu. Slíkt samstarf getur búið til rétta umhverfið og alið af sér frumkvöðla sem fengu að byrja að prófa hluti í grunnskóla, þróuðu áfram í framhaldsskóla og gerðu hugmynd að veruleika í frumkvöðlasetri háskólafélagsins. Þorum að hugsa um stóru myndina og sköpum aðstæður þar sem ný tækifæri verða til.


Bragi Bjarnason

Frambjóðandi í 1.sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Sveitarfélaginu Árborg, www.bragibjarna.is

bottom of page